Brimsalir eru nefndir eftir kraftmiklu sjávarbrimi sem einkennir ströndina þar sem húsið stendur, við eitt helsta brimbrettasvæði Íslands. Húsið er um 600 fermetrar að stærð og var áður fiskvinnsluhús en hefur fengið nýtt hlutverk sem skapandi vettvangur fyrir listir, menningu og samfélagsstarf í hjarta Ólafsfjarðar.
Á neðri hæðinni er Brimsalur, fjölnota viðburðarými sem nýtist fyrir listasýningar, námskeið, fyrirlestra, tónleika, skapandi smiðjur, fundi og fjölbreytta samfélagsviðburði. Þar hafa einnig verið haldnar samverustundir, samsöngur og fjölskylduviðburðir sem hafa fest Brimsali í sessi sem lifandi menningar- og samkomustað.
Á efri hæðinni er í suðurenda hússins íbúð fyrir lista- og fræðimannadvöl. Í norðurenda eru opin vinnurými fyrir sjálfstætt starfandi einstaklinga, listafólk, frumkvöðla, fræðafólk, nemendur og fólk í fjarvinnu þar sem lögð er áhersla á skapandi vinnuumhverfi og samstarf.
Við endurbætur á húsinu hefur verið lögð rík áhersla á sjálfbærni og endurnýtingu. Leitast hefur verið við að nýta sem best það sem fyrir var og endurnýta efni, húsgögn, innréttingar og búnað þegar því verður við komið. Jafnframt hefur hráum og iðnaðarlegum karakter hússins verið haldið til haga og skapað hlýlegt umhverfi sem hentar jafnt skapandi starfi sem samfélagslegum viðburðum.
Brimsalir hafa þróast í lifandi samkomustað þar sem fólk kemur saman til að skapa, læra, sýna verk sín og njóta menningar. Markmiðið er að efla samfélagið með því að bjóða opinn vettvang sem styður við listir, menningu, frumkvæði, samstarf og skapandi atvinnu í Fjallabyggð.