Brimsalur er sveigjanlegt viðburðarými á neðri hæð Brimsala við Námuveg 8. Salurinn dregur nafn sitt af briminu sem dynur í fjörunni rétt fyrir utan og snýr í suður með fallegu útsýni yfir fjörðinn.
Rýmið hentar jafnt fyrir fjölskylduveislur og samfélagsviðburði sem og námskeið, fundi, fyrirlestra, tónleika, listasýningar, markaði og ýmsa aðra viðburði. Brimsalur hefur þegar verið vettvangur fjölbreyttrar starfsemi og býður upp á sveigjanlega aðstöðu sem auðvelt er að laga að ólíkum þörfum.
Í salnum er eldhús og glæsilegur eikarskápur sem varðveitir borðbúnað Jóns Þorsteinssonar óperusöngvara. Borðbúnaðurinn, ásamt dúkum og fleiri munum úr eigu hans, gefur rýminu hlýlegt yfirbragð og skapar sérstaka tengingu við sögu staðarins.
Brimsalur er leigður út til einstaklinga, fyrirtækja og félagasamtaka. Við rekstur salarins er lögð áhersla á sjálfbærni og hringrásarhugsun. Húsgögn, borðbúnaður og margir aðrir munir hafa fengið nýtt líf með endurnýtingu, sem skapar einstakt umhverfi þar sem saga, sköpun og umhverfisvitund fara saman.
Hittingar