Hvað er að gerast í Brimsölum?
Hvað er að gerast í Brimsölum?
Það er alltaf eitthvað að gerast í Brimsölum. Hér skiptast á sýningar, viðburðir, skapandi verkefni, námskeið og smiðjur – og stundum verða hugmyndir til sem ekki voru endilega á dagskránni fyrirfram.
Brimsalir eru staður fyrir fólk, sköpun og samfélag. Við viljum að húsið geti tekið á móti ólíkum hugmyndum og skapað rými fyrir list, handverk, fræðslu, sögur, tónlist og góðar samverustundir. Jafnframt viljum við varðveita og miðla sögum og minningum úr samfélaginu og tengja þær við það sem er að gerast í dag.
Á Facebook-síðu Brimsala segjum við reglulega frá því sem er í gangi, sýnum myndir frá verkefnum og viðburðum og látum vita af því sem er fram undan.
Fylgstu með Brimsölum á Facebook og sjáðu hvað er að gerast hverju sinni.