Brimsalir draga nafn sitt af kraftmiklu sjávarbrimi við strönd Ólafsfjarðar, þar sem er eitt helsta brimbrettasvæði Íslands. Húsið, sem áður hýsti fiskvinnslu, er um 600 fermetrar og hefur nú öðlast nýtt hlutverk sem lifandi miðstöð lista, menningar og samfélagsstarfs.
Á neðri hæð er Brimsalur, fjölnota rými fyrir sýningar, tónleika, námskeið, skapandi smiðjur, fundi og fjölbreytta samfélagsviðburði. Á efri hæð er íbúð fyrir lista- og fræðimannadvöl ásamt opnum vinnurýmum fyrir listafólk, frumkvöðla, sjálfstætt starfandi einstaklinga og fólk í fjarvinnu.
Sjálfbærni og endurnýting eru leiðarljós í uppbyggingunni. Með því að nýta eldri efni, húsgögn og búnað hefur iðnaðarsvipur hússins varðveist og um leið skapast hlýlegt og skapandi umhverfi.
Brimsalir eru opinn vettvangur þar sem fólk kemur saman, skapar, lærir og deilir hugmyndum – staður sem eflir menningu, samstarf og samfélag í Fjallabyggð.
Námuvegur 8, Ólafsfjörður
s. 6957718 / 8987126
brimsalir@brimsalir.is